Íranmynd

Posted by Picasa

FERÐ TIL ÍRANS , 1.-14.okt

ÞESSI FERÐ ER NÚ FULLSKIPUÐ

Það eru ekki ýkjur að segja að Íran hafi slegið í gegn hjá íslensku hópunum okkar. Þar kemur vitaskuld margt til, einstök saga, fagrir staðir,spennandi nútími og síðast en ekki síst ljúft viðmót fólksins


1.dagur.1.okt

Flogið með Flugleiðum til London og síðan áfram til Teheran með British Midland. Komið um nóttina. Fulltrúi ferðaskrifstofu Arg e Jaad tekur á móti hópnum. Farið á hótel Laleh sem er 5 stjörnu hótel.(4ra á okkar mælikvarða). Þar tjekkum við síðan inn.

2.dagur 2.okt

Morgunverður í seinna lagi.

Eftir hádegið er skoðunarferð í Teheran. Þá er byrjað á að Sa’d Abad safnið þar sem síðasti keisari Írans bjó fyrir byltinguna. Þar getur að líta gnægð dýrgripa, hvort sem eru teppi eða keramik og málverk. Við komum við á frægri kaffistofu þar sem intelligensían og ungviði sækja. Eftir það er vonandi tími til að skoða heimili Khomeinis í Teheran sem stingur óneitanlega í stúf við þau dýrindi sem voru í keisarabústaðnum.

Þetta á að vera rólegur dagur svo allir nái sér vel eftir flugið.

Kvöldverður


3.dagur 3.okt

Morgunverður

Fyrri hluta dags er farið að skoða einstaklega skemmtilegt nútímalistasafn svo og teppasafn þar sem getur að líta miklar gersemar. Eftir hádegi á Þjóðminjasafnið ef tími vinnst til. Annars síðar í ferðinni.

Síðdegis er flogið til Sjiraz, borgar næturgala, skálda og rósa eins og Íranir sjálfir orða það. Sjiraz er aðalborgin í Farshéraði og þar er margt minja frá því Akkamenídar og Sassanítar ríktu þar. Við tjekkum inn á Pars hótel sem er 5 stjörnu hótel og er einstaklega vel í sveit sett.

Pars hótel sími 0098 711 233255

fax 0098 711 2336380

imeil: parshotel2000@yahoo.com


4.dagur 4.okt

Morgunverður

Skoðunarferð til Narenjestan eða Appelsínugarðinn sem var reistur síðari hluta 19aldar sem móttökusalur fyrir gesti og var síðar viðhafnarbústaður. Við skoðum Nasir Molk moskuna og Khan guðfræðiskólann. Göngum um bazarinn, þar sem er margt að skoða og enn fleira að kaupa. Fáum okkur ís eða te og skoðum grafhýsi Hafez þess fræga skálds.

Pars hótel sími 0098 711 233255

fax 0098 711 2336380

imeil: parshotel2000@yahoo.com


5.dagur 5.okt

Farið út til Persepolis sem er jafnan talinn einn af hápúnktunum í heimsókn til Írans en þar er best varðveitt rústaborg hins forna veldis Akkamenída en þeir stýrðu Persíu milli 559 og 330 fyrir Krist.

Þaðan er stutt til Nekrópólis þar sem eru gríðarleg tilkomumikil grafhýsi nokkurra konunga Akkamenída hoggin inn í klettaveggina. Á leiðinni til Sjiraz aftur gerum við stans við grafhýsi Khajo-Kermani skálds. Svo mætti hugsa sér að nota tíma á bazarnum. Borðum og gistum á Parshóteli.


6. dagur 6.okt

Morgunverður

Fyrir hádegi förum við að grafhýsi skáldsins Saadi og skoðum Eram garðana og er frjáls tími. Kvöldverður. Gistum á Parshóteli


7. dagur 7.okt

Morgunverður

Keyrt áleiðis til Yazd um Pasargad og Abarqu. Við stoppum við Pasargad þar sem er grafhýsi Kýrusar mikla Persakóngs.

Yazd er stærsta byggð Zorostría- sem margir hafa kallað elddýrkendur, en er raunar ævaforn átrúnaður sem tengist árstíðunum fjórum. Áður en komið er til Jazd skoðum við Turn þagnarinnar greftrunarstað upp á hæð.

Gistum á sérlega fallegu hóteli í Yazd Mohsir-Ol Mamalek

og borðum kvöldverð þar.

Moshir Al Mamalek Hotel Garden sími 98 351 5239769 fax 98 351 5253979

imeil: info@hotelgardenmoshir.com


8. dagur.8.okt

Morgunverður

Við skoðum okkur um í Yazd þennan dag, en þar er sérstakur eyðimerkurarkitektúr, Jamemoskan setur mestan svip á gamla bæinn. Við förum í vatnssafnið og víðar og íhugum að þarna kom Alexander mikli á sínum tíma og byggði alræmt fangelsi. Borgin er einnig fræg fyrir vefnað og hennagerð. Gönguferð um gömlu borgina.

Gistum í Yazd.


9.dagur.9.okt

Morgunverður

Nú er lagt af stað til Isfahan um Meybod og mætti hugsa sér að stoppa við kastalavirkið þar og skoða líka keramikvinnustofur þar. Við förum um Nain sem er fræg fyrir teppagerð sem þykir einstök. Þegar við komum til Isfahan hreiðrum við um okkur á hótel Aseman sem er prýðisgott 4ra stjörnu hótel. Gistum þar.
98 311 2354141


10.dagur 10.okt

Morgunverður

Isfahan þykir fegurst allra borga í Íran og verður ekki ýkt um töfra hennar og Lífgjafarfljótið sem rennur um hana. Einstaklega fagrar bláar moskurnar eru eitt frægasta einkenni Isfahan. Við skoðum nokkrar þessara moska og bregðum okkur e.t.v. á skondinn íþróttaleik þar sem karlar reyna með sér. Skreppum etv. í gönguferð um nágrennið og komum við á testofu undir einni af mörgum brúm yfir fljótið. Gistum á Aseman.


11.dagur. 11.okt

Morgunverður

Við höfum nóg að gera í Isfahan. Við heimsækjum armenska hverfið og dómkirkjuna þar sem var reist á 17.öld. Við skoðum Skjálfandi mínerettuna, fleiri dýrðlegar moskur og hallir og síðast en ekki síst gerum við víðreist um bazarinn og heimsækjum m.a. listamenn em teikna minaturmyndir svo og lítum við inn í teppabúðir eina eða tvær en teppi eru Íranir frægir fyrir. Borðað og gist á Aseman.



12.dagur, 12.okt

Morgunverður.

Frjáls dagur í Isfahan en fararstjórar ekki langt undan.



13.dagur.13.okt

Morgunverður

Snemma á fætur og akandi til Teheran, förum framhjá hinni helgu borg Qom á leiðinni.
Við komuna til Teheran förum við á Þjóðminjasafnið. Tjekkum við inn á Laleh. Leggjum okkur stund og borðum svo kveðjukvöldverð Gistum þar.


14.dagur 14.okt.

Við fáum te/kaffi um nóttina og síðan er brottför til flugvallar. Flogið til London og eftir nokkurra tíma bið áfram til Íslands.



Innifalið er

Flug og skattar

Gisting og fullt fæði

Aðstoð við komu og brottför

Flug innan Írans

Allar skoðunarferðir sem eru taldar upp í áætlun

Aðgangseyrir á alla skoðunarstaði sem er getið um í áætlun

Tips á flugvöllum, hótelum og veitingastöðum

Vatn og te/kaffi á löngum ökuleiðum.

Íslensk fararstjórn

Vegabréfsáritun til Írans


Ekki innifalið

Tips til íranska leiðsögumannsins og bílstjóra 170 dollarar á mann. Ég innheimti það einhvern fyrstu dagana.


Athugið að áfengi er ekki að fá í Íran og má ekki flytja það inn í landið.

Konur skulu bera slæðu.

VISA kort eru tekin við teppakaup og ef menn kaupa miniaturmyndir. Annars þarf að hafa dollara eða evrur.



Upplýsingar getið þið alltaf fengið hjá mér í símum 5514017 og 8976117

netfang: jemen@simnet.is